Picture
Annað folald ársins fæddist þann 13. maí síðastliðinn. Það er hestfolald undan Víði frá Prestsbakka (8.34) og Díönu frá Núpi I. Víðir er óðum að sanna sig sem kynbótahestur, en hann er undan Keili frá Miðsitju (8.63) og gæðingshryssunni Gleði frá Prestsbakka (8.70).
Díana frá Núpi I er 8 vetra gömul hryssa úr okkar ræktun, undan Glæsi frá Litlu-Sandvík og Sprungu frá Langholti.

Víðissonurinn hefur hlotið nafnið Hákon frá Eyvindarmúla en nafni hans, Hákon Þór, 6 mánaða gamall sonur okkar er eigandi hans. Folaldið er virkilega myndarlegt, með mikinn og fallegan frampart og fer mest um á tölti og skeiði með miklu rými.


The second foal of the year was born May 13th. It was a stallion foal sired by Víðir frá Prestsbakka (8.34) and Díana frá Núpi I. Víðir has been proving himself as a good breeding horse in the last year, but he's sired by Keilir frá Miðsitju (8.63) and the great mare Gleði frá Prestsbakka (8.70).
Díana frá Núpi I is a 8 years old mare from our own breeding, sired by Glæsir frá Litlu-Sandvík (8.11) and Sprunga frá Langholti.

The foals has got the name Hákon frá Eyvindarmúla, but he got the name from our 6 months old son, Hákon Þór, who is also his owner. Hákon is really handsome, with great neck and goes mostly around on tölt and pace with long steps.

 
 
Picture
Skuggi frá Brekku, Fljótsdal er 10 vetra gamall fjórgangshestur undan Dynssyninum Glóa frá Tjarnarlandi og 1. verðlauna Hrafnsdótturinni Skuggsjá frá Brimnesi. Hann er auðveldur og skemmtilegur í reið og hentar vel í keppni fyrir ungling eða ungmenni.  Hann er með góðar grunngangtegundir og er efnilegur keppnishestur.
Nánari upplýsingar, myndir og video má finna hér.


Skuggi frá Brekku, Fljótsdal is 10 years old 4-gaiter sired by Glói frá Tjarnarlandi and the 1.prize mare Skuggsjá frá Brimnesi. He's easy and fun to ride and suits well in competitions for teenagers or young adults. He's got good gaits and is a promising competition horse.
More information, photos and video can be found here.

 
 
Picture
Vorið er alltaf svo skemmtilegur tími, þar sem þá fær maður loks að sjá afrakstur þeirra miklu stóðhestapælinga sem maður eyddi svo miklum tíma í árinu áður. Svo ekki sé minnst á sauðburðinn sem nú er alveg á fullu.

En fyrsta folald ársins kom í gærkvöldi, en það reyndist vera hestfolald undan 1. verðlauna merinni okkar Heklu frá Höfn 2 og hinum frækna Sæ frá Bakkakoti.
Folinn er fífilbleikstjörnóttur og alveg gullfallegur. Hann hlaut það virðulega nafn Eyvindur frá Eyvindarmúla, en við vonum að hann muni koma til með að verða eins virðulegur í framtíðinni og nafnið segir til um.


The spring is always such a great time, then one finally get's to see the outcome of the last year's stallion considerations. Not to mention the lamb season, which is now in full swing with newborn lambs all over our barn.

But the first foal of the year was born last night, but that turned out to be a stallion foal. His dam is our 1. prize mare Hekla frá Höfn 2 and his sire is the great gæðing Sær frá Bakkakoti.
The foal is red dun with a star and is quite a handsome fellow. He got the respectable name Eyvindur frá Eyvindarmúla, but we hope that he'll turn out to be as respectable in the future as the name suggests.

 
 
Picture
Hlekkur frá Norður-Hvammi er flottur 12 vetra gamall stóðhestur undan Hvamm frá Norður-Hvammi og Öxl frá Hofsstöðum. Hann er klárhestur með 7.77 í aðaleinkunn. Hann er með mikið rými á gangi og góð gangskil, mikinn fótaburð og fas. Frábær hestur sem gæti hentað til margra hluta, s.s. keppni, ræktun eða einfaldlega sem frábær reiðhestur með eðal geðslag.
Nánari upplýsingar, myndir og video má finna hér.

Hlekkur frá Norður Hvammi is a good looking 12 years old stallion,s ired by Hvammur frá Norður-Hvammi and Öxl frá Hofsstöðum. He's got 7.77 in total as a 4-gaiter. He's got a lot of speed on the tölt and good distinguish between gaits, high leg action and great charisma. A great horse who would suit for many things, such as competition, breeding or simply as a great riding horse with fantastic temperament.
More information, photos and video can be found here.

 
 
Picture
Soldán frá Hallgeirseyjarhjáleigu er myndarlegur graðhestur á 6 vetur undan Pegasusi frá Grímsstöðum og Gjöf frá Langholti. Hann er rúmlega mánaðartaminn, fínn í beisli og auðveldur í reið. Hann er rólegur og þægilegur í umgengni og með opið tölt. Virkilega álitlegur og myndarlegur foli sem væri tilvalið verkefni fyrir þá sem vilja búa sér til góðan hest á lítinn pening.
Nánari upplýsingar, myndir og video má finna hér.

Soldán frá Hallgeirseyjarhjáleigu is a handsome stallion who's turning 6 years old this spring, sired by Pegasus rá Grímsstöðum and Gjöf frá Langholti. He's trained for about a month, nice in the bridle and easy to ride. He's calm and comfortable to handle and the tölt is open. Really eligable and handsome colt for those who want to make themselves a good horse for good price.
More information, photos and video can be found here.

 
 
Picture
Erum búin að setja inn nýtt video af Hramm frá Þjóðólfshaga. Hann er undan tveimur 1. verðlauna foreldrum, þeim Huga frá Hafsteinsstöðum og Hugsjón frá Húsavík.
Hrammur er efnilegur og spennandi foli á 4 vetur sem gaman verður að sjá hvernig kemur út á næstunni, en nú er hann orðinn taminn í 4 mánuði.
Meiri upplýsingar, nýjar myndir og video má finna hér.


We now have put new video of Hrammur frá Þjóðólfshaga on the website. He's sired by 1. prize parents, Hugi frá Hafsteinsstöðum and Hugsjón frá Húsavík.
Hrammur is a promising and exciting colt who's turning 4 years old next spring. It will be fun to see how he turns out in the future but he's now trained for about 4 months.
More information, new photos and video can be found here.

 
 
Picture
Nú eurm við búin að bæta við nýju videoi af Hetju frá Keldulandi. Hetja er 6 vetra gömul meri undan Val frá Höskuldsstöðum og Bínu frá Sandhólaferju. Hún er tæplega 4 mánaða tamin . Hún er rúm á gangi og með flottan fótaburð og töltið er vel opið. Hetja er tilvalið verkefni fyrir einhvern sem er að leita sér af ungri og efnilegri hryssu með flottan lit!
Meiri upplýsingar, myndir og video má finna hér.


We have now put a new video of Hetja frá Keldulandi on the website. Hetja is a 6 years old mare sired by Valur frá Höskuldsstöðum and Bína frá Sandhólaferju. She's less than 4 months trained. She has good steps, with high leg action and the tölt is well open. Hetja is a perfect project for someone who's looking for a young and promising mare with great color!
More information, photos and video can be found here.

 
 
Picture
Gletta frá Reykjavík er meri á 6 vetur undan Sæssyninum Tón frá Ólafsbergi og Orku frá Haga. Hún er mjög flott alhliða hryssa sem var gangsett í vetur. Þetta er jöfn hryssa með góðar gangtegundir. Stefnan er að fara með hana í kynbótadóm eftir nokkrar vikur.
Nánari upplýsingar, myndir og video má finna hér.


Gletta frá Reykjavík is a mare who's turning 6 years old this spring, sired by the son of Sær frá Bakkakoti, Tónn frá Ólafsbergi and Orka frá Haga.
She's a very good 5-gaited mare who was taught how to tölt this winter. She's stable with good gaits. The aim is to go with her to a breeding evaluation after few weeks.
More information, photos and video can be found here.

 
 
Picture
Kornelíus frá Kirkjubæ er geldingur á 9 vetur undan Hrynjanda frá Hrepphólum og Sylgju frá Bólstað. Hann er fjórgangshestur með mjög góðar grunngangtegundir og gæti hentað vel sem keppnishestur fyrir vanan ungling eða jafnvel bara sem frábær reiðhestur. Hann er hágengur og á auðvelt með að bera sig, léttur í beisli og næmur og skemmtilegur hestur.
Meiri upplýsingar, myndir og video má finna hér.


Kornelíus frá Kirkjubæ is a gelding who's turning 9 years old this spring, sired by Hrynjandi frá Hrepphólum and Sylgja frá Bólstað. He's a 4-gaiter with very good gaits and could suit well as a competition horse in teens class or simply as a great riding horse. He's got high leg action and carries himself well, light on the reins, sensitive and fun to ride.
More information, photos and video can be found here.

 
 
Picture
Otur frá Hallgeirseyjarhjáleigu er faxmikill og myndarlegur stóðhestur á 6 vetur undan Pegasus frá Grímsstöðum og Kúpu frá Norður-Hvammi. Hann er rétt um mánaðartaminn en hann er mjög fínn í beisli og auðveldur í reið. Flottur fótaburður og góðir taktar í þessum hesti.
Meiri upplýsingar, myndir og video má finna hér.

Otur frá Hallgeirseyjarhjáleigu is a handsome and charming stallion who's turning 6 years old this spring, sired by Pegasus frá Grímsstöðum and Kúpa frá Norður-Hvammi. He's trained for about a month but he's really nice in the bridle and easy to ride. High leg action and good looking steps in this horse.
More information, photos and video can be found here.


Picture
Hattur frá Hallgeirseyjarhjáleigu er gullfallegur stóðhestur á 4 vetur undan Hlekk frá Norður-Hvammi og Djörf frá Kálfhóli 2.  Hann er um mánaðartaminn en hann kom mjög vel út úr frumtamningu. Þetta verður 5-gangshestur en hann er með mjög mikið rými og fótaburð. Flottur og álitlegur foli með flottan lit.
Meiri upplýsingar og myndir má finna hér.


Hattur frá Hallgeirseyjarhjáleigu is a good looking stallion who's turning 4 years old this spring, sired by Hlekkur frá Norður-Hvammi and Djörf frá Kálfhóli 2. He's trained for about a month but he turned out really good in that training. This is a 5-gaited horse and he has a high leg action and long strides. Handsome and promising colt with great color.
More information and photos can be found here.

 

    Goshestar

    Picture
    Eyvindarmúli
    861 Hvolsvöllur
    Iceland

    Tel : +354 8696888 and +354 8419697
    Email : goshestar@gmail.com

    Categories

    All

    RSS Feed